Hér má fínna ýmislegt efni sem tengist sameiningu skóla. Hægt er að smella á tnenglana til að hlaða upp skjölum:
Bókun Barnanna okkar á menntaráðsfundi, 9. febrúar 2011
Stjórn Barnanna okkar hefur verulegar áhyggjur af framvindu leikskólamála í borginni. Þær sameiningarhugmyndir sem eru uppi á borðinu fela í sér niðurskurð til leikskólamála þriðja árið í röð. Með uppsögnum leikskóla- og aðstoðarleikskólastjóra hlýtur álagið á starfsfólk leikskóla að aukast enn frekar, til viðbótar því álagi sem takmörkun á yfirvinnu og minnkað svigrúm til funda og undirbúnings hefur þegar valdið. Ennig er viðbúið að mikilvæg þekking og reynsla tapist þar sem ekki er hægt að gefa sér að leikskólastjórar og aðstoðarleikskólastjórar sæki um aftur eftir uppsagnir. Allt þetta bitnar að sjálfsögðu á gæðum starfsins.
Fyrir ári síðan töluðu borgarfulltrúar um að standa vörð um grunnþjónustuna án þess að enn hafi verið svarað hvað teljist til grunnþjónustu. Nú er talað um sameiningu til að auka faglegan ávinning, en því er enn ósvarað hver hinn faglegi ávinningur er. Við óskum svara við hvaða faglegi ávinningur felst í því að fækka starfsfólki og hver er grunnþjónustan sem borgin ætlar að verja, felst hún einungis í að tryggja börnum okkar geymslupláss?
Fyrirspurn Barnanna okkar á 126. fundi, 25. ágúst 2010
Í skýrslu starfshóps um tilraun um samrekstur leikskólanna Tjarnarborgar og Öldukots 2009-2010 og í umræðu fundar menntaráðs 11. ágúst 2010 kom fram að það hefði mátt gefast meiri tími til funda með skólastjóra og starfsfólki beggja leikskóla. Í ljósi niðurskurðar á yfirvinnutíma leikskólastarfsmanna til fundarhalda, spyrjum við: 1. Verður tryggð fjárveiting til reglulegra fundarhalda starfsfólks, t.d. einu sinni í mánuði, á yfirvinnutíma a.m.k. fyrsta starfsárið þegar leikskólar verða sameinaðir?
Svar hefur ekki borist
Fyrirspurn Barnanna okkar á 72. fundi, 20. janúar 2010
Hvernig dreifist niðurskurður til leikskóla?
Óskað er eftir yfirliti eða greinargerð um hvernig niðurskurðurinn skiptist niður á einstaka leikskóla og rekstrarliði.
Svar á 74. fundi leikskólaráðs, 24. febrúar 2010
Í fjárhagsáætlun leikskólasviðs Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 er gert ráð fyrir tæplega 2% hagræðingu í leikskólum borgarinnar. Hagræðingin er einkum í:
Fjármagn sem leikskólar fá úthlutað vegna til rekstursins er breytilegt eftir fjölda barna, aldri þeirra, vistunartíma barnanna, menntun starfsmanna, gjaldskrá sem foreldrar greiða og fjölda úthlutaðra stuðningstíma til barna með sérþarfir. Þessir liðir geta breyst verulega frá ári til árs í einum og sama leikskólanum og því er ekki marktækt að bera saman reksturinn á milli ára.
Vert er að taka fram að þó hagræðing hafi verið í þessum liðum þá kom einnig til hækkun í fjárhagsramma einstakra leikskóla vegna:
Meiri upplýsingar um fjárhagsáætlun einstakra leikskóla er að finna í greinargerð með fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar og starfsáætlun Leikskólasviðs. Einnig er vert að vekja athygli á niðurstöðum rekstrarúttektar Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar í umfjöllun um hvern leikskóla fyrir sig og heildarumfjöllun á bls. 13. Slóð á skýrsluna er:
http://www.rvk.is/Portaldata/1/Resources/innri_endurskodun/skjol/3._Leiksk_lar_rekstrar_ttekt.pdf
Einnig er hægt að hlaða henni upp með því að smella hér.