Bókun Barnanna okkar á 130. fundi menntaráðs, þann 13. október 2010, við svar menntaráðs, frá 22. september 2010, við fyrirspurn um eldvarnarmál í leikskólum
Í janúar lögðu Börnin okkar fram eftirfarandi fyrirspurn „Óskað er eftir upplýsingum um hvernig staðið er að brunæfingum í leikskólum, hvort til séu viðbragðsáætlanir og hvort til séu rýmingaráætlanir fyrir alla leikskólana“. Í kjölfar þess lagði Leikskólasvið spurningalista fyrir leikskólastjóra á þessu ári sem 74 af 78 leikskólum svöruðu. Niðurstöður þess eru m.a. að engin rýmingaráætlun til í 5 leikskólum af þessu 74 sem svara, eða 7% skóla. Aldrei eru haldnar brunaæfingar í 17 þessara leikskóla sem svara, eða 23%.
Samkvæmt rgl. 200/1994 um eigið eftirlit eigenda og forráðamanna með brunavörnum í atvinnuhúsnæði kemur m.a. fram í grein 3.3 um brunaæfingar að í atvinnuhúsnæði þar sem 30 manns eða fleiri starfa skuli halda brunaæfingu a.m.k. árlega. Í slíkum brunaæfingum er farið yfir helstu brunavarnir húsa og rýming húsa æfð undir umsjón slökkviliðsstjóra eða annars aðila sem viðurkenndur er til slíks.
Ljóst er að Reykjavíkurborg brýtur lög hvað varðar brunaæfingar á leikskólum.
Samtökin Börnin okkar – samtök foreldrafélaga leikskólabarna telja ljóst að öryggismálum í leikskólum Reykjavíkur er verulega ábótavant og mjög mikilvægt er að þessi mál verði tekin föstum tökum nú þegar.
Bókun fulltrúa Samfylkingarinnar og Besta flokksins 13. október 2010
Ekki er tekið undir það að öryggismálum í leikskólum borgarinnar sé verulega ábótavant. Alltaf má gera betur og starfsfólk Leikskólasviðs og leikskólanna er ávallt á verði yfir öryggi og velferð barna í leikskólum. Strax var gripið til aðgerða vegna niðurstaðna kannana um brunavarnir og ber leikskólastjórum að uppfylla ítrustu kröfur sem gerðar eru.
Fyrirspurn Barnanna okkar á 124. fundi, 23. júní 2010
Varðandi eldvarnarmál:
a) Börnin okkar óska eftir að fá afrit af spurningalista þeim sem sendur var á leikskólastjóra eins og hann barst þeim.
b) Börnin okkar óska eftir niðurstöðum brunavarnakannana sem gerð var í vetur.
Svar á 129. fundi menntaráðs, 22. september 2010
Meðfylgjandi eru umbeðnar niðurstöður. Í opnum svörum leikskólastjóra má sjá að ýmsar skýringar eru gefnar á því að spurningum er ekki svarað játandi. Leikskólasvið hefur nú þegar sett af stað vinnu til að tryggja að þeir leikskólar sem hlut eiga að máli bæti úr þessu og er farið fram á tafarlausar úrbætur. Önnur könnun verður gerð nú í október og eiga allir leikskólar þá að vera komnir með umrædda hluti í gott lag.
Fylgiskjöl (sjá pdf skjal)
1. Spurningarlisti til leikskólastjóra
2. Niðurstaða könnunar ásamt opnum svörum leikskólastjóra
Fyrirspurn Barnanna okkar á 79. fundi, 19. maí 2010
Er þetta í fyrsta sinn síðan að könnun Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins var birt í maí 2009 sem Reykjavíkurborg/Leikskólasvið hefur kannað þætti sem varðar eldvarnir á leikskólum?
Svar á 124. fundi menntaráðs, 23. júní 2010
Könnun á eldvörnum og skyndihjálp í leikskólum Reykjavíkur var gerð í febrúar 2010. Niðurstöður úr könnuninni bárust í lok maí. Samkvæmt þeim niðurstöðum nauðsynlegt að Leikskólasvið láti vinna viðbragðsáætlun fyrir alla leikskóla borgarinnar.
Fyrirspurn Barnanna okkar á 77. fundi, 21. apríl 2010
Óskað er eftir frekari niðurstöðum úr könnun Leikskólasviðs á brunaæfingum á leikskólum. Er þetta í fyrsta sinn sem að Leikskólasvið hefur kannað þætti sem varða eldvarnir á leikskólum síðan að könnun Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var birt í maí 2009?
Svar á 78. fundi leikskólaráðs, 5. maí 2010
Könnun á eldvarnarmálum leikskólanna er í gangi hjá TOR og niðurstöður væntanlegar í seinnihluta maí.
Fyrirspurn Barnanna okkar á 72. fundi, 20. janúar 2010
Hvernig er staðið að eldvörnum hjá leikskólum Reykjavíkurborgar?
Einnig óskað eftir upplýsingum um hvernig staðið er að brunavarnararæfingu, hvort til séu viðbragðsáætlanir og hvort til séu rýmingaráætlanir fyrir alla leikskólana.
Svar á 74. fundi leikskólaráðs, 24. febrúar 2010
Fullkomið brunaviðvörunarkerfi er í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar, lögboðin þjónustusamningur er um yfirferð og prófanir einu sinni á ári. Þjónustusamningur er um yfirferð út og neyðarljósa, sú skoðun fer fram í ágúst og september ár hver.
Þá fer Forvarnarsvið SHS reglulega í skoðun í fyrrnefndum húseignum. Framkvæmdasvið Rvk. Fær sendar skýrslur frá þeim um að viðkomandi leikskóli sé í lagi eða ef gerðar eru athugasemdir. Ef athugasemdin er alvarleg er veittur ákveðinn frest til að ljúka lagfæringum.
Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar tók upp eigið eftirlit á síðasta ári og er búið að yfirfara alla leikskóla. Viðkomandi eftirlitsmaður fer með gátlista sem hann merkir við og eru þessir listar síðan vistaðir í gagnagrunni sviðsins. Þessar skýrslur eru síðan notaðar sem vinnuplagg við gerð fjárhagsáætlunar. Aðkallandi verkefnum er sinnt strax.
Viðbragðsáætlanir og rýmingaráætlun eru í höndum rekstraraðila. Framkvæmdasvið er ekki með upplýsingar um hvort áætlun er til fyrir alla leikskóla, en eins og áður kom fram er það rekstraraðili sem ber ábyrgð á að framfylgja því.
Ofangreindar upplýsingar eru fengnar hjá Framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar.
Haustið 2006 var gerður samstarfssamningur við Fræðslu- og forvarnadeild Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, um fræðslu fyrir starfsfólk leikskóla Reykjavíkurborgar. Í kjölfarið voru haldin námskið um eldvarnir og notkun handslökkvitækja fyrir leiskólastjóra og öryggisfulltrúa allra leikskóla Reykjavíkurborgar. Einni fór slökkviliðsmaður í hvern leikskóla borgarinnar og skoðaði hann, fræddi starfsfólk og börn um eldvarnir og viðbrögð við hæggu. Í lokin var haldin rýmingaræfing.