Öryggi og slys

 

Fyrirspurn Barnanna okkar á 79. fundi, 19. maí 2010

Börnin okkar óska eftir því að Leikskólasvið safni saman skráningum sem leikskólastjórar eiga að gera skv. lið 5.4 í reglugerð fyrir starfsleyfisskilyrði leikskóla og skóla varðandi skráningu á slysum og óhöppum hjá börnum á leikskólum. Börnin okkar óska eftir afrit af þessari samantekt.

 

Svar á 124. fundi menntaráðs, 23. júní 2010

Leikskólasvið mun láta safna saman slysaskráningum frá leikskólum og kynna niðurstöður fyrir Leikskólaráði. Svara verður að vænta haustið 2010.

 

Fyrirspurn Barnanna okkar á 77. fundi, 21. apríl 2010

Hefur Leikskólasvið óskað eftir upplýsingum um árlega slysatíðni barna á leikskólum frá heilbrigðisstofnunum? Ef svo er, óskum við eftir að fá afrit að skýrslu fyrir árið 2009.

 

Svar á 78. fundi leikskólaráðs, 5. maí 2010

Eins og fram kom í svari Hermanns Valssonar þá er erfitt að fá nákvæmar upplýsingar frá heilbrigðisstofnunum um þetta, en leikskólar halda skráningu um slys á börnum og þær skráningar eru aðgengilegar í hverjum leikskóla.

 

Tillaga Barnanna okkar á 77. fundi, 21. apríl 2010

Leikskólaráð samþykki að starfsmenn leikskóla sæki námskeið í fyrstuhjálp (endurlífgunar og skyndihjálparnámskeið) og þeirri þekkingu verði haldið við með ábyrgum hætti (t.d. á tveggja ára fresti). Benda má á að Kópavogsbær hefur gert samning við Forvarnahúsið um að sinna þessu fyrir þeirra hönd. Börnin Okkar telur að Reykjavíkurborg ætti í engu að vera eftirbátur annara sveitarfélaga þegar kemur að öryggi leikskólabarna.

 

Svar á 78. fundi leikskólaráðs, 5. maí 2010

Leikskólastjóri hvers leikskóla hefur forgöngu um að haldin séu námskeið fyrir starfsfólk leikskólanna í fyrstu hjálp. Þetta er gert í samráði við aðila sem bjóða upp á slík námskeið. Að mati þeirra aðila er æskilegt að starfsmenn fái námskeið og þjálfun í fyrstu hjálp, að minnsta kosti á þriggja ára fresti.