Bókanir um öryggismál

Bókun Barnanna okkar á 141. fundi menntaráðs, þann 23. mars 2011

Í skýrslum Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur má sjá að mikill misbrestur hefur verið á því að farið sé að tilmælum þeirra síðustu ár og mörg dæmi eru um alvarlegar athugasemdir sem ítrekaðar eru á milli ára eins og hengingahætta í rennibraut, klemmihætta í gormatæki og drukknunarhætta. Mikilvægt er að sýnt verði fram á að farið verði í framkvæmdir til að svo alvarlegar athugasemdir verði lagfærðar strax, eins og tilmæli eru um í skýrslum Heilbrigðiseftirlitsins. Börnunum okkar finnst mikilvægt að árleg aðalskoðun leikskóla fari fram árlega eins og kveðið er á um í reglugerð nr. 942/2002 og nr. 607/2005 en í því felst að óháður aðili með vottun til þess taki út útileiksvæði.

Bókun fulltrúa Samfylkingarinnar og Besta flokksins 23. mars 2011

Börnunum okkar er þakkað fyrir ábendingar sínar. Ljóst er að þörf er á skilvirku eftirliti. Daglega yfirfer starfsfólk leikskólanna lóðirnar og slysum á börnum hefur fækkað jafnt og þétt síðastliðin ár. Árlega er reglubundið eftirlit frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar, sem er óháður eftirlitsaðili, og tekur út allar leikskólalóðir. Unnið er að úrbótum jafnt og þétt.

Bókun Barnanna okkar á 141. fundi menntaráðs, þann 23. mars 2011

Á fundi leikskólaráðs (nú menntaráðs) þann 19. maí 2010 lögðu Börnin okkar fram ósk um að safnað væri saman upplýsingum um slys og óhöpp á leikskólum borgarinnar og fengu loforð um slíka samantekt með haustinu. Slík samantekt hefur enn ekki verið birt þrátt fyrir óskir um það. Þessi þrjú atriðið samanlögð: (1) ekki er brugðist við alvarlegum ábendingu Heilbrigðiseftirlits um úrbætur á leikskólalóðum, (2) ekki er framkvæmd lögbundin aðalskoðun á leikskólalóðum skv. rlg. nr. 942/2002 og 607/2005 og (3) ekki er haldið miðlægt utan um slys og óhöpp á leikskólum Reykjavíkurborgar, er ekki vænleg blanda til að tryggja öryggi barna okkar í leikskólum borgarinnar.

Bókun fulltrúa Samfylkingarinnar og Besta flokksins 23. mars 2011

Öryggi barna er forgangsmál borgaryfirvalda og er kappkostað að vinna jafnt og þétt að úrbótum jafnt sem eftirliti.

Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna 23. mars 2011

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna telja brýnt að haldið verði áfram endurbótum þeim, sem hafnar voru á lóð leikskólans Hólaborgar fyrir nokkrum árum, og þeim lokið sem fyrst þar sem lóðin er í afar bágbornu ástandi. Jafnframt að við endurgerð lóðar Seljaskóla verði þar lagður körfuknattleiksvöllur með gúmmíundirlagi (tartani eða sambærilegu efni).

3. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem var frestað á fundi menntaráðs 16. mars 2011:

Menntaráð samþykkir að beina því til borgarráðs og Framkvæmdasviðs að við

ákvörðun um lagningu battavalla á skólalóðum á árinu 2011 verði farið eftir tillögum Íþróttabandalags Reykjavíkur og Knattspyrnuráðs Reykjavíkur um forgangsröðun slíkra valla en við hana var farið eftir því hvar íþróttaaðstöðu barna og unglinga væri helst ábótavant í hverfum Reykjavíkur. Umræddar tillögur voru samþykktar einróma á fundi íþrótta- og tómstundaráðs 21. maí 2010.

Samþykkt.

 


Bókun Barnanna okkar á 140. fundi menntaráðs, þann 16. mars 2011

Börnin okkar gagnrýna óvandaðan málflutning í skýrslunni, t.d. eru sumar vegalengdir sem gefnar eru upp í skýrslunni milli leikskóla sem á að sameina rangar. Ekki eru birtar ýtarlegar niðurstöður úr þeim SWOT greiningarferlum sem sögð er hafa farið fram og rökstuðningur mjög keimlíkur fyrir alla leikskóla. Ekki er augljóst að fækkun leikskólastjóra og sameiningar komi ekki til með að bitna á faglegu starfi leikskóla.

Áheyrnarfulltrúi foreldra lýsir undrun á þeirri misskiptingu sem er í áherslum tillagnanna á milli hverfa þar sem sum hverfi verða harkalegra fyrir barðinu á sameiningum en önnur eins og Breiðholtið þar sem sameina á 10 af 14 leikskólum og fjöldi barna á leikskólastjóra verður langt yfir meðaltali fyrir borgina og önnur hverfi.

Bókun fulltrúa Samfylkingarinnar og Besta flokksins 16. mars 2011

Ekkert bendir til þess að stærð skóla, eða fjöldi barna á stjórnanda hafi merkjanleg áhrif á gæði stjórnunar eða leikskólastarfs. Áfram er frábært leikskólastarf í sameinuðum leikskólum, bæði í Reykjavík sem og öðrum sveitarfélögum. Sjálfsagt er að greina vegalengdir með mun nákvæmari hætti og leggja fram á næsta fundi menntaráðs. Í Breiðholti eru leikskólar frekar smáir og margir standa nálægt hvor öðrum og því leggur starfshópurinn til sameiningar þeirra leikskóla.

 


Bókun Barnanna okkar á 139. fundi menntaráðs, þann 23. febrúar 2011

Börnin okkar fagna þeim erindum sem borist hafa um niðurskurð og sameiningar-hugmyndir í leikskólum. Við skorum á meirihlutann að bregðast við gagnrýnisröddum sem berast um sameiningar, samrekstur og niðurskurð á Leikskólasviði og endurskoði afstöðu sína í ljósi gagnrýnisradda.

Börnin okkar harma þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið við undirbúning
niðurskurðar í menntakerfi borgarinnar. Við mótmælum því að gefa sér, að ekkert annað komi til greina en niðurskurður og sameiningar og hvetjum borgina til að setja börn og ungmenni í forgang. Í uppsiglingu er mesta bakslag í leikskóla- og menntamálum sem um getur.

Bókun fulltrúa Samfylkingarinnar og Besta flokksins 23. febrúar 2011

Meirihluti menntaráðs bendir á að í fjárhagsáætlun þessa árs er forgangsraðað í þágu innra starfs leikskólanna og þeim hlíft við frekari hagræðingu. Eins var staðinn vörður um kjör starfsfólks sem hefur lægstu launin í leikskólunum og tæplega 500 milljónum bætt í ramma Leikskólasviðs á milli ára til að mæta einum stærsta árgangi Íslandssögunnar sem þarfnast leikskóla- og dagforeldraplássa á þessu ári. Sameiningar hafa verið skoðaðar síðastliðin tvö ár á Leikskólasviði og mörg sveitarfélög hafa endurskipulagt rekstur og yfirstjórn sinna skóla síðustu ár. Ekki yrði ráðist í slíkar breytingar ef það teldist vera neikvæð skólaþróun, þvert á móti felast í því fagleg tækifæri og umfram allt tækifæri til að standa betur vörð um skólastarfið sjálft, þó breytingar verði á yfirstjórn.