Bókun Barnanna okkar á 130. fundi menntaráðs, þann 13. október 2010, við svar menntaráðs, frá 22. september 2010, við fyrirspurn um aðalskoðun í leikskólum:
Aðalskoðun er einn liður af þremur í innra eftirliti leikskóla (skv. reglugerð 942/2002 og 607/2005) og sá hluti eftirlits sem á að fara fram af óháðum aðila sem hefur vottaða faggildingu til aðalskoðunar. Frá því í janúar 2006 hefði aðalskoðun leikskóla átt að fara fram árlega. Samkvæmt Faggildingastofu hefur einn aðili á Íslandi vottaða faggildingu til aðalskoðunar leikskóla (BSI á Íslandi), samkvæmt þeim og umhverfisráðuneytinu, hafði enginn leikskóli fengið aðalskoðun árið 2009 og aðeins tveir leikskólar samtals fengið aðalskoðun síðan 2006.
Jafnvel þótt í þrígang hafi verið spurt um aðalskoðun á fundum leikskólaráðs/menntaráðs hafa ekki fengist haldbær svör hvort og hvenær aðalskoðun hafi farið fram og ýmist vísað á Framkvæmdasvið eða Heilbrigðiseftirlitið en hvorugur aðilinn framkvæmir aðalskoðun eins og kröfur um aðalskoðun eru tilgreindar í reglugerðinni. Við undrumst að fá svo misvísandi svör við fyrirspurnum okkar.
Það er ekki framkvæmd lögbundin aðalskoðun í leikskólum borgarinnar og það hefur ekki verið haldið hingað til miðlægt utan um slys á börnum í leikskólum í borginni (sbr. svar menntaráðs frá 23. júní). Börnin okkar hafa verulegar áhyggjur af þessu og telja að bæta þurfi verulega úr að farið sé að tilmælum Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um úrbætur, framkvæma þurfi aðalskoðun leikskóla og að halda þurfi miðlægt utan um slysaskráningu vegna slysa sem verða í leikskólum í borginni.
Bókun fulltrúa Samfylkingarinnar og Besta flokksins 13. október 2010
Börnunum okkar er þakkað fyrir ábendingar sínar. Ljóst er að þörf er á skilvirku eftirliti. Daglega yfirfer starfsfólk leikskólanna lóðirnar og slysum á börnum hefur fækkað jafnt og þétt síðastliðin ár. Árlega er reglubundið eftirlit frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar, sem er óháður eftirlitsaðili, og tekur út allar leikskólalóðir. Unnið er að úrbótum jafnt og þétt.
Athugasemd Barnanna okkar við Bókun Samfylkingar og Besta flokksins (var ekki bókuð á fundinum)
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur er fjárhagslega háð Reykjavíkurborg og er því ekki óháður aðili frá Reykjavíkurborg. Þrátt fyrir að Heilbrigðiseftirlitið sinni eftirliti með leikskólum er borgin samt ekki að fara að lögum um að árlega aðalskoðun á leikskólum borgarinnar, þar sem óháður aðili með faggildingu á að taka út leikskólalóðir.
Það er mikið áhyggjuefni að
Samanlögð áhrif ofangreindra atriða valda Börnunum okkar þungum áhyggjum af öryggi barna á leikskólum borgarinnar.
Fyrirspurn Barnanna okkar á 124. fundi, 23. júní 2010
Varðandi aðalskoðun:
a) Hvenær fór síðasta aðalskoðun á leiksvæðum leikskóla Reykjavíkurborgar fram?
b) Börnin okkar óska eftir að fá afrit af niðurstöðum seinustu aðalskoðunar.
Svar á 129. fundi menntaráðs, 22. september 2010
Eftirlit leikskóla Reykjavíkur með leiksvæðum leikskóla borgarinnar er með eftirfarandi hætti:
Daglega fer fram reglubundin yfirlitsskoðun. Starfsmenn leikskólanna sjá um þessa skoðun, sem felst í því að farið er yfir allt leikskvæði barnanna, sópað og rakaða eftir þörfum og öryggi kannað.
Heilbrigðisfulltrúar hafa skoðað leikskólalóðir árlega m.t.t. öryggis og gert kröfu um endurbætur í þeim tilvikum þar sem öryggismálum hefur verið ábótavant. Heilbrigiseftirlit hefur eftirlit með leikskólalóðum og heilbrigðisfulltrúar hafa fengið sérstaka þjálfun til að sinna þessu verkefni. Reglulegt eftirlit stendur nú yfir og mun Heilbrigðiseftirlitið skoða allar leikskólalóðir á næstu vikum. Eftirlitsskýrslur, og ef ástæða þykir til endurbóta, eru kröfur sendar til leikskólastjóra, Leikskólasviðs og Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar. Hverfastöðvar borgarinnar eiga að bregðast þeim athugasemdum sem gerðar eru. Heilbrigðiseftirlitið er sjálfstæður utanaðkomandi aðili. Ef óskað er eftir afriti af úttek þeirri sem nú er verið að gera verður það sent samtökunum að henni lokinni.
Á árinu 2007 var gerð umfangsmikil úttekt á öllum leikskvæðum borgarinnar af faggildum úttektaraðila, bæði hjá stofnunum og á opnum svæðum.
Við gerð fjárhagsætlunar vegna ársins 2011 mun leikskólasvið árétta mikilvægi og nauðsyn þess að aðalskoðun fyrir öll leiksksvæði er falla undir reglugerð nr. 942/2002 fari fram. Allir ferlar í tengslum við öryggi leikvallatækja og leiksvæða verða yfirfarnir.
Fyrirspurn Barnanna okkar á 79. fundi, 19. maí
Þýðir svar Leikskólasviðs við annarri fyrirspurn Barnanna okkar, sem lagðar voru fram í leikskólaráði 21. apríl 2010 að aðalskoðun skv. reglugerð 942/2002 og 607/2005 hafi aldrei farið fram? Ef svo er ekki, hvenær var síðasta aðalskoðun framkvæmd.
Svar á 124. fundi menntaráðs, 23. júní 2010
Upplýsingar frá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar
Leikskólalóðir eru skilgreindar sem leiksvæði, eru starfsleyfisskyldar og falla undir starfsleyfi leikskólanna. Í reglugerð nr. 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim er kveðið á um innra eftirlit á leiksvæðum.
Heilbrigðiseftirlitið hefur eftirlit með því að farið sé að kröfum reglugerðarinnar varðandi leikvallatæki í notkun og öryggi leiksvæða. Tíðni eftirlitsins er háð mati eftirlitsaðila og við slíkt mat skal tekið tillit til umfangs og innra eftirlits þess leiksvæðis sem um ræðir.
Heilbrigðiseftirlitið getur einnig látið fjarlægja leikvallatæki ef nauðsyn ber til. Heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík hefur vísað til þessara ákvæði í bréfum og eftirlitsskýrslum og gerir kröfur um að innra eftirlit á leikskólalóðum sé skv. reglugerðinni en það er rekstraraðili sem ber ábyrgð á innra eftirliti.
Frá því að reglugerðin tók gildi hafa heilbrigðisfulltrúar skoðað leikskólalóðir árlega m.t.t. öryggis og gert kröfur um endurbætur í þeim tilvikum þar sem öryggismálum hefur verið ábótavant.
Staðan í dag er sú að innra eftirliti á leikskólalóðum er ábótavant en eins og fram hefur komið er það rekstraraðili sem ber ábyrgð á að það sé í lagi.
Innra eftirlitið greinist í þrenns konar skoðanir eins og kemur fram hér að neðan.
1. Reglubundin yfirlitsskoðunin á að fara fram daglega í leikskólum og það þarf að skrá að slíka skoðun. Við eftirlit með leikskólum í fyrra kom í ljós að dagleg yfirlitsskoðun fer fram en skráningar eru aðeins í u.þ.b. 70% tilvika. Heilbrigðiseftirlitinu hafa ekki borist upplýsingar um rekstrarskoðanir og u.þ.b.90% hafa ekki fengið aðalskoðun.
2. Heilbrigðiseftirlitið hefur eftirlit með leikskólalóðum og heilbrigðisfulltrúar hafa fengið þjálfun í að skoða leiksvæði út fá öryggi barnanna þ.e. meta áhættu þeirra sem nota svæðið.
3. Árlegt eftirlit stendur nú yfir og mun Heilbrigðiseftirlitið skoða allar leikskólalóðir (áhættumeta) á næstu vikum og verða eftirlitsskýrslur og ef ástæða er til, kröfur um endurbætur sendar til leikskólastjóra, Leikskólasviðs og Framkvæmda- og eignasviðs.
|
Viðauki úr reglugerð þar sem fjallað er um innra eftirlit. VIÐAUKI III Innra eftirlit. Innra eftirlit greinist í reglubundna yfirlitsskoðun, rekstrarskoðun og aðalskoðun 1. Reglubundna yfirlitsskoðun getur þurft að framkvæma daglega allt eftir notkun og álagi á leiksvæðinu. Tilgangur hennar er að greina strax hættur sem geta stafað af skemmdarverkum, notkun, sliti eða veðrun. Dæmi um þetta er hættulegt rusl, skemmd leikvallatæki, lausar festingar leikvallatækja og marka, slitnir hreyfihlutir, flísar, útistandandi naglar og skrúfur og óvarðar undirstöður. Reglubundin yfirlitsskoðun felst einnig í að jafna yfirborðsefni undir leikvallatækjum með því að raka til möl og sand og sópa lausu efni af stéttum eftir þörfum. Þá skal við reglubundna yfirlitsskoðun fjarlægja skemmd leikföng og gera viðeigandi ráðstafanir til að taka bilaðan búnað úr umferð. 2. Rekstrarskoðun felst í verklegri yfirferð, viðhaldi og viðgerðum og gæti þurft að framkvæma hana á 1-3 mánaða fresti eftir notkun og álagi. Skoðuninni er ætlað að ganga úr skugga um að leikvallatæki virki eins og til er ætlast, stöðugleiki og festingar þeirra séu tryggar, kanna slitfleti, gera við tæki og framkvæma nauðsynlegt viðhald, svo sem mála, skipta um slitfleti, festa tæki og jafna undirlag. Hér er bæði unnið eftir leiðbeiningum framleiðanda og ábendingum frá reglubundinni yfirlitsskoðun. 3. Aðalskoðun er ástandsskoðun sem ætlað er að gera heildarúttekt á öryggi leikvallatækja, yfirborðsefna, m.a. yfirborðsefna til dempunar falls, og undirstaða undir leikvallatækjum (stöðugleikapróf), til dæmis vegna áhrifa veðrunar eins og ryðs og rotnunar á leikvallatæki og á yfirborðsefni. Einnig allar breytingar er geta haft áhrif á öryggi leikvallatækja. Þar má nefna áhrif viðgerða eða ísetningu nýrra hluta og uppsetningu nýrra tækja á leiksvæðum. Staðallinn segir til um að aðalskoðun eigi að vera framkvæmd af hæfum aðila samkvæmt leiðbeiningum framleiðenda. Hæfni aðila fer eftir eðli verkefnis. |
Bókun Barnanna okkar, á 124 fundi menntaráðs, þann 23. júní 2010, við svar borgarlögmanns um aðalskoðun leikskóla:
Börnin okkar, samtök foreldra leikskólabarna líta svo á að borgarlögmaður sé sammála okkur um að aðilar á vegum Reykjavíkurborgar séu ekki óháðir í störfum sínum og því ófullnægjandi að heilbrigðiseftirlit sinni aðalskoðun.
Tillaga Barnanna okkar á 79. fundi, 19. maí
Samkvæmt reglugerð nr. 942/2002 og reglugerð nr. 607/2005 (síðari breytingar) mega þeir einir framkvæma aðalskoðun sem hlotið hafi faggildingu til þess. Í lagaumhverfi okkar á Íslandi þýðir faggildin eða fagilt skoðun að óháður aðili eigi að framkvæma úttekt. Því er ekki fullnægjandi að Reykjavíkurborg, sem rekur leikskólana, framkvæmi einnig úttekt á leikskólum. Við hjá Börnunum okkar leggjum til að Leikskólaráð feli borgarlögmanni að kanna lögmæti þess að Framkvæmdasvið sjái um aðalskoðun.
Tillagan var samþykkt.
Svar á 124. fundi menntaráðs, 23. júní 2010
Lagt fram svar borgarlögmanns, dags. 10. júní sl., við beiðni leikskólaráðs um að kanna lögmæti þess að Framkvæmdasvið sjái um aðalskoðun í leikskólum borgarinnar.


Fyrirspurn Barnanna okkar á 77. fundi, 21. apríl 2010
Samkvæmt reglugerð nr. 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim, með vísan í viðbót nr. 607/2005 1. grein, mega þeir einir framkvæma aðalskoðun sem hlotið hafa faggildingu til þess eftir 1. janúar 2006. Hver sinnir þessu að hálfu Reykjavíkurborgar og hversu oft? Óskað er eftir afriti af eftirlitsskýrslum eftirlitsaðila.
Svar á 78. fundi leikskólaráðs, 5. maí 2010
Þau svör fengust hjá Framkvæmdasviði að svokölluð aðalskoðun, framkvæmd af aðila með faggildingu, sem ofangreindar reglugerðir kveða á um eigi að vera á vegum Framkvæmdasviðs einu sinni á ári en að slík skoðun hafi ekki farið fram.
Reglubundið eftirlit er hins vegar framkvæmt einu sinni á ári á vegum Umhverfis? og samgöngusviðs. Þar er stuðst við sömu reglugerðir og í aðalskoðun og í kjölfar þeirra sendar inn skýrslur með ábendingum um það sem betur megi fara. Slík skoðun er fyrirhuguð nú í sumarbyrjun. Skýrslur vegna slíkra skoðana eru gerðar fyrir hvern leikskóla eða opið leiksvæði fyrir sig og varðveittar á Framkvæmdasviði.