Úr kynningarbæklingum Leikskóla Reykjavíkur
Hlutverk leikskólastjóra:
Leikskólastjóri ber ábyrgð á uppeldisstarfi leikskólans og skipuleggur það í samvinnu við starfsfólk, börn og foreldra. Leikskólastjóri skipuleggur jafnframt og ber ábyrgð á samstarfi við foreldra, sér um ráðningu starfsfólks og vinnutilhögun. Hann heldur fundi með starfsmönnum og foreldrum og ber ábyrgð á rekstri leikskólans.
Foreldrasamstarf og foreldrafélög
Mikilvægt er að góð samvinna og trúnaði takist strax í byrjun milli foreldra og starfsmanna í leikskólanum. Samráðshópur foreldra og starfsmanna skal vera starfandi við hvern leikskóla. Hann hefur það hlutverk að fylgjast með og hafa áhrif á uppeldis- og menntastefnu leikskólans. Foreldrafélag er einnig starfandi við hvern leikskóla. Markmið þess er að efla tengsl foreldra og starfsmanna og tryggja velferð barnanan sem best.
Allir starfsmenn leikskólans eru bundnir þagnarskyldu.
Starfsmenn Leikskóla Reykjavíkur eru um 1700 talsins í 1200 stöðugildum (4.7.2000)
Lög um leikskóla eru nr. 78 frá 1998.
14. gr. Leikskólastjóra er skylt að stuðla að samstarfi milli foreldra barnanna og starfsfólks leikskólans með velferð barnanna að markmiði. Sé óskað eftir stofnun foreldrafélags skal leikskólastjóri aðstoða við stofnun þess.
Reglugerð um starfsemi leikskóla er nr. 225/1995 og nr. 365/2001
Þar stendur m.a. eftirfarandi
VI. Kafli
Samstarf leikskóla og foreldra.
17. gr.
Markmið með samstarfi leikskóla og foreldra leikskólabarna er að stuðla að velferð barnanna sbr. 3. lið 2. gr. laga nr. 78/1994. Tengsl leikskóla og foreldra styrkja uppeldisstarf leikskóla og ytri umgerð starfseminnar. Er það byggt á því að leikskólabörn, foreldrar og starfsfólk leikskóla hafa ýmissa sameiginlegra hagsmuna að gæta. Gera skal ráð fyrir slíku samstarfi við skipulagningu starfsins í samræmi við uppeldisáætlun fyrir leikskóla.
18. gr.
Samstarf leikskóla við foreldra skal byggja á þeirri forsendu að foreldrar bera aðalábyrgð á uppeldi og velferð barna sinna.
Samstarf fer m.a. fram í daglegum samskiptum og sérstökum viðtölum starfsmanna og foreldra og samstarfi á vettvangi félags foreldra. Gera skal ráð fyrir að samstarf nái jafnt til samvinnu um ytri starfsskilyrði og umhverfi leikskóla og atriða sem varða uppeldishlutverk leikskólans, innan ramma uppeldisáætlunar.
19. gr.
Frumkvæði að stofnun foreldrafélags við leikskóla getur hvort sem er komið frá foreldrum, leikskólastjóra eða öðrum starfsmönnum leikskóla eða frá leikskólanefnd. Í öllum tilvikum skal leikskólastjóri aðstoða við stofnun félags.
Foreldrafélag hvers leikskóla setur sér starfsreglur.