Stofnun og starfsreglur

Hvernig á að stofna foreldrafélag?

1. Bera fram tillögu um stofnun foreldrafélags

2. Samþykkja starfsreglur (lög).  Foreldrafélag hvers leikskóla setur sér starfsreglur.

3. Bera fram tillögu að fjárhæð félagsgjalds.

4. Óska eftir sjálfboðaliðum í stjórn, helst 1-2 fulltrúa frá hverri deild.

5. Tilnefna fulltrúa frá leikskólanum í stjórn.

Hvernig eiga starfsreglur að vera ?

Sjá sem dæmi starfsreglur Sólbakka

Hérna er einnig formlegur texti sem er tilvalið að nota og stílfæra:

Starfsreglur

1. gr. Félagið heitir Foreldrafélag ________

2. gr. Félagar eru foreldrar og forráðamenn barna á ________

3. gr. Markmið foreldrafélagsins er að stuðla að velferð barna með því að vinna að:
a) aukinni samvinnu foreldra og starfsfólks og foreldra innbyrðis um starfsemi og aðbúnað leikskólans.
b) því að leggja hagsmunum barna lið bæði innan leikskólans og út á við

4. gr. Félagsgjald er ákveðið á aðalfundi. Gjaldið greiðist mánaðarlega. Leitað skal eftir samvinnu leikskólastjóra eða rekstraraðila leikskóla um innheimtu þess.

eða

4. gr. Félagsgjald er ákveðið á aðalfundi.  Gjaldið greiðist 2svar á ári.  Gjaldkeri innheimtir félagsgjaldið. 

Gjaldið rennur í sjóð sem stendur straum af kostnaði við starfsemi félagsins
eðaGjaldið rennur í sjóð sem stendur straum af kostnaði við starfsemi félagsins
eða

5. gr. Kosning til stjórnar félagsins skal fara fram á aðalfundi. Stefnt skal að því að hver deild leikskólans eigi fulltrúa í stjórninni. Auk þess skal starfsfólk kjósa einn fulltrúa til setu í henni, þannig að samtals skipi stjórn __ fulltrúar. Æskilegt er að hluti fulltrúa sitji í tvö ár í senn í stjórn. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Kjósa skal formann, gjaldkera og ritara.

6. gr. Félagsmenn skulu á aðalfundi móta leiðir að markmiðum félagsins. Bókfæra skal allar ákvarðanir.

7. gr. Stjórn félagsins hefur forgöngu um alla vinnu við starfsemi þess. Val verkefna og vinna stjórnarmanna og annarra félagsmanna skal vera innan ramma markmiða félagsins og að því marki sem ákvarðana aðalfundar nýtur við skal eftir þeim starfað.

Stjórnin kemur saman svo oft sem þurfa þykir, að jafnaði þó ekki sjaldnar en mánaðarlega.

8. gr. Aðaalfund skal halda á tímabilinu 15. sept til 1. nóv. ár hvert og skal boða til hans með auglýsingu með minnst viku fyrirvara.

Dagskrá aðalfundar skal vera þessi:

a) Skýrsla um starfsemi félagsins
b) Reikningar félagsins
c) Kosning til stjórnar
d) Breytingar á starfsreglum
e) Ákvörðun félagsgjalda
f) Önnur mál

9. gr. Tillögur til breytinga á starfsreglum verða að hafa borist stjórn skriflega í síðasta lagi 3 dögum fyrir auglýstan fund. Breytingar á starfsreglum ná því aðeins fram að ganga að 2/3 fundarmanna greiði þeim atkvæði.

Starfsreglur þessar voru samþykktar á stofnfundi félagsins þann