Leikskólauppeldi og foreldrauppeldi er ekki það sama og hvorugt getur komið í stað hins. Foreldrar þurfa að kynna starfsmönnum leikskóla barnið sitt og þarfir þess, eðli og líðan. Starfsmenn þurfa að upplýsa foreldra hvernig börnunum gangi í leikskólanum. Óformleg viðtöl þegar komið er með barnið í leikskólann eða þegar barnið er sótt henta vel til umræðu um barnið dag frá degi. Það erum við foreldrarnir sem berum aðalábyrgð á uppeldi og velferð barna okkar og sem slík þá berum við líka ábyrgð á leikskólauppeldi þeirra. Foreldrafélög eru því grundvöllur þess að foreldrar standi vörð um hagsmuni barnanna á leikskólanum. Foreldrar eiga að vera vakandi fyrir gæðum þjónustunnar sem börnin þeirra fá. Samstarf foreldra og starfsmanna leikskólans verður að vera á þeim nótum að hvor aðili samstarfsins sinni því hlutverki sem hann kann betur en hinn, leikskólakennarar leikskólauppeldina og foreldrar foreldrauppeldina.
Leikskólaárin er sá tími í lífi barnanna þar sem grunnur er lagður að framtíðarþroska þeirra og því þurfum við foreldrar að leggja okkar af mörkum til að sá tími verði sem best nýttur og sem ánægjulegastur fyrir börnin okkar. Mikilvægt er að virkja foreldrar með stofnun foreldrafélaga og með því að halda reglulega fundi þar sem skipst er á skoðunum, með því að læra hvert af öðru og fá aðstoð eða stuðning við lausn vandamála sem kunna að koma upp.