Félagsgjöld

Hvað eru æskileg félagsgjöld?
Félagsgjöldin á Klömbrum eru 2500 fyrir 1 barn 2x á ári, og 3000 kr. fyrir  fl 1 barn 2x á árið.
Félagsgjöld á Sólbakka eru 2500 kr fyrir 1 barn tvisvar á ári.

Dæmi um ráðstöfun félagssjóðs

-útgáfa frétabréfs foreldrafélagsins, sem oft er gefið út í samráði og samvinnu við starfsfólk leikskólans

-gjald fyrir rútu þegar þess er þörf og fyrir veitingar t.d. í fjöru-, sveitar- eða gróðursetningarferð og fargjald báts þegar það á við (hlutur leikskólabarnanna)

-kostnaður af leiksýningum, sem fengnar eru til leikskólans

-kostnaður af fyrirlestrum á foreldra- og starfsmannafundum

-kostnaður fyrir "aðkeypta" jólasveina, þar sem þess gerist þörf og jólapakka á jólaskemmtum

-kostnaður af bæjarferðum barnanna fyrir jól fyrir veitingar handa þeim á kaffihúsi

-kostnaður við föndur og vorhátíð

-gjafir á tímamótum, myndavélar, tölvur, trampólín, Web Cam, endurskinsvesti

Eru allir skyldugir að greiða í skemmtisjóð?
Ekki er hægt að skylda foreldra til að greiða í skemmtisjóð en aldrei skal hengja upp nöfn skuldara. Foreldrar hafa val um að greiða ekki í skemmtisjóð og ef svo ber undir skal viðkomandi foreldrum bent á að hafa barnið heima þann dag sem atburðir eru sem eru í boði foreldrafélagsins.