Embætti foreldrafélaga

Formaður sér um að boða til funda í samráði við tengilið skólans. Formaður er fundarstjóri. Hann hefur yfirumsjón með stefnumótun. Kemur fram fyrir hönd stjórnarinnar. Hefur yfirlit og yfirumsjón með að allt gangi sem skyldi og er milligöngumaður í ágreiningsmálum.

Varaformaður er upplýstur um allt sem formaður gerir og er formaður í förföllum formanns

Gjaldkeri sér um að halda reikningum til haga, innheimta gjöldin og halda utan um þau, greiða reikninga, gera uppgjör í loks starfsárs og kynna þá á aðalfundi

Ritari skrifar niður fundargerðir og heldur utan um þær

Auglýsingastjóri - fréttastjóri sér um að hanna auglýsingar til að hengja upp í skólanum sem auglýsa uppákomur.  Einnig sér hann um fréttabréfið, að skrifa það og koma því í ljósritun og dreifingu.

 

Praktískar leiðbeiningar fyrir stjórnir foreldrafélaga leikskóla

1. Skipuleggið starfið fram í tímann.

2. Ákveðið fyrirfram hvenær fundir eiga að vera. Bæði hvað varðar tíma, dagsetningu og lengd.

3. Skipið í stjórn. Æskilegt er að hafa formann, varaformann, gjaldkera, ritara og auglýsingastjóra sem jafnframt er ritstjóri.

4. Þar sem stjórnirnar sitja yfirleitt stutt er mikilvægtað helmingur stjórnar sitji áfram. Algengt er að einstaklingar sitji 2 ár. Fyrra árið sem nýliðar, seinna árið sem fulltrúar embætta og kennarar.

5. Aðalstarfsemin fer fram á tímabilinu september til maí.

6. Komið strax á fyrsta fundi stjórnar

7. Setjið hefðbundnar uppákomur strax á skemað.

8. Lesið áfangaskýrslu leikskólans og framkvæmdaáætlun. Gerið athugasemdir ef ykkur finnst þess þurfa.

9. Athugið hvort foreldrafélagið geti lyft undir með uppákomum eða aðlagað þær að starfsemi skólans, s.s. eins og þegar þema er um eldvarnir eru í skólanum að fara á slökkvistöðina. Ef þemað er umferðarreglur að fá lögregluna o.s.frv.

 

Dæmi um tíðni funda stjórna foreldrafélaga

Sep. kosin stjórn. Fyrsti fundur ákveðinn. Nöfn skrifuð niður og heimilisföng og sími.

Okt. Skema útbúið, farið yfir uppákomur síðoasta árs. Áfangaskýrsla lesin og athugasemdir gerðar. Gert frumplan af uppákomum. Fyrirlestrar með hverfafélögum. Kynnt í fréttabréfi til foreldra.  Bangsadagur 27. október :)

Nóv. Undirbúningur fyrir jólaföndur og atburði í desember.

Des. Uppákomur vegna jólanna t.d. jóladagur, föndurdagur, kökumálun, jólapakkar, jólaball, kirkjuferð

Jan. Fyrirtækjaheimsóknir, bíóferð, leikhúsferð

Feb. Áframhaldandi endurskoðun á uppákomum tengt þema skólans. Mat á því hvernig til hefur tekist í skólanum. Eftirlit með aðbúnaði í skólanum, leiktækjum og öðru sem þurfa þykir. Hrósa fyri rþað sem vel hefur tekist og láta berast til foreldra og starfsmanna.  Gera athugasemdir ef eitthvað má laga.

Mar. Fyrirlestrar fyrir foreldra í samráði við hverfafélög.

Apr. Uppákomur, leikrit, sveitarferð

Maí. Vorferð, vorhátíð