Aðalmarkmiðið með stofnun foreldrafélaga er að tryggja velferð og hagsmuni barnanna og stuðla að velferð þeirra. Tengsl foreldra og leikskóla styrkja einnig uppeldisstarf leikskóla og ytri umgerð starfsemi hans.
Það sem við í Börnin okkar viljum leggja áherslu á með foreldrafélögum er samstarf.Samstarf foreldra og starfsfólks og samstarf foreldra innbyrðis.
Á flipunum hér til vinstri er að finna ýmsar upplýsingar um foreldrafélög. Ef þú lumar á hugmynd að því hvað foreldrafélög eiga að gera skaltu endilega hafa samband.
Foreldrafélög skipuleggja atburði á vegum foreldrafélagsins og leikskólans t.d. ferðalög, föndur, skemmtanir, uppákomur, hátíðir, heimsóknir o.s.frv. Foreldrafélagið styður leikskólastarfið með því að taka þátt í kostnaði og aðstoða við undirbúning atburða.
Foreldrafélög beita þrýstingi ef eitthvað má betur fara í leikskólanum t.d. húsnæði, lóð sem stenst ekki öryggiskröfur, hættuleg leiktæki. Leikskólastjóra er mikill styrkur í stuðningi foreldra sem beita þrýstingi á leikskólaráð.
Foreldrafélög vinna í málum ef innanhúsvandamál koma upp t.d. ef foreldrar eru óánægðir með sumarlokanir, ófullnægjandi starfsemi, starfsmannaskort, skorts á faglærðu fólki o.fl.
-standa fyrir fyrirlestrum í leikskólanum eða öðrum almennum fundum foreldra
-skipuleggja stuttar ferðir með börnin í þeirra nánast umhverfi, í sundlaugina, fjöruna, móanna, almenningsgarðinn, að tjörninni eða á íþróttavöllin
-undirbúa og framkvæma ýmis konar verkefni og uppákomur, s.s. jólaskemmtun, 17. júní hátíðarhöld, föndurdaga eða ferðalög