Börnin okkar hafa safnað saman eftirlitsskýrslum Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, þar sem tilgreindar eru athugasemdir og hvað þurfi að lagfæra á leikskólum borgarinnar. Í skýrslunum kemur því miður fram að mikill misbrestur hefur verið á því að farið sé að tilmælum þeirra síðustu ár og mörg dæmi eru um alvarlegar athugasemdir sem ítrekaðar eru á milli ára. Auk þess er ekki er safnað saman á einn stað upplýsingum um þau slys sem verða á leikskólum borgarinnar og Reykjavíkurborg lætur ekki aðalskoða útileiksvæði eins og reglur gera ráð fyrir. Við höfum tekið saman greinagerð um ástand öryggismála á leikskólum borgarinnar.
Velkomin(n) á vef Barnanna okkar, samtaka foreldrafélaga og foreldraráða leikskóla Reykjavíkur.
Heimasíðunni er ætlað að miðla upplýsingum á milli foreldra leikskólabarna í Reykjavík.
Sendu okkur endilega fyrirspurn og netföng stjórnar foreldrafélags þíns leikskóla.
Til að fræðast nánar um börnin okkar skaltu velja Hjálparskrár foreldrafélaga á hliðarvalmyndinni til vinstri. Þar finnurðu ítarlega kynningu á samtökunum.
Stjórn Barnanna okkar hefur það hlutverk að standa vörð um hagsmuni og velferð leikskólabarna á leikskólum Reykjavíkurborgar. Hægt er að leita til Barnanna okkar með athugasemdir, spurningar og annað tengt velferð barna á leikskólum Reykjavíkurborgar.
Börnin Okkar eiga einn fulltrúa í Menntaráði Reykjavíkurborgar og annan í nefnd um Hvatningaverðlaun til Leikskóla.
Börnin okkar harma forgangsröðun meirihlutans í borginni og hvernig málefni leikskólabarna eru fótum troðin. Auk þess að sameina 24 leikskóla fyrir 1. júlí næstkomandi verður bakland leikskólanna sett í algjört uppnám með tillögu um sameiningu leikskólasviðs, menntasviðs og tómstundamála ÍTR. Ekki á aðeins að segja upp 47 leikskólastjórum og aðstoðarleikskólastjórum, heldur á einnig að segja upp sviðstjórum leikskólasviðs og menntasviðs - og allt á þetta að gerast á sama tíma því nýr sviðstjóri, sameinaðs sviðs, á að taka til starfa 1. júlí. Tillagan um nýtt heiti sviðsins „skóla- og frístundasvið“ segir allt sem segja þarf um forgangsröðunina! Ekki er minnst á málefni leikskóla í nýju heiti sviðsins. Eins og þessar fjölda sameininga skapi ekki nægan óróa í leikskólamálum, er þörf á að hvolfa bátnum úti á ólgusjó með uppsögn sviðsstjóranna og sameiningu sviðanna?
Augljóslega eru til nægir peningar í borginni því á fundi borgarráðs 14. apríl var samþykkt m.a. að veita 12 mkr til lagfæringar á lóð í miðbænum sem borgin virðist ekki eiga og að veita 275 mkr. í framkvæmdir á sundlaugum. Alls er gert ráð fyrir 500 mkr í fjárhagsáætlun 2011 í endurbætur og nýframkvæmdir sundlauga t.d. að gera sjópott, endurgera búningsherbergi og upphitaðar gönguleiðir í Laugardalslaug fyrir um helming framkvæmdafjárins. Auk þess er borgin nýbúin að samþykkja að veita Orkuveitunni 8 milljarða króna lán. Augljóslega er til fjármagn fyrir því sem sett er í forgang. Börnin okkar krefjast þess að málefni leikskólabarna verði sett í forgang nú þegar.